Website Counter
Hit Counters

Friday, March 24, 2006

Hann a afmæli i dag...hann a afmæli hann Joshuaaaa..hann a afmæli i dag...

Hæ hó jibbí jei...föstudagur runninn upp.

Planið fyrir helgina er spennandi.

Joshua Þór Nwosu átti 2 ára afmæli á mánudaginn á morgun og af því tilefni á að blása til mannfagnaðar á 14 Cornwall Road, London á morgun, laugardag.
Við systur sjáum um veitingarnar, enda orðnar ansi sjóaðar í þeim efnum. Ég gerði meira að segja ostaköku fyrir afmælið í gærkvöldi með dyggri aðstoð Karenar. Spurning hvort við systur förum ekki bara í veitingabransann 'full-time'??
Pólitísk afmælis-og veisluþjónusta með einkaþjálfun, sálfræðilegri ráðgjöf og fréttayfirliti. Neei, annars, ég held að við séum ekkert að skipta um vettvang.

Bæði pabbi og Snorri lögðu land undir fót í morgun til að vera viðstaddir fögnuðinn svo það verður margt góðra gesta.

Já það er ekki laust við að ég hlakki bara til um helgina....enda aldrei leiðinlegt að geta gúffað í sig veitingum í barnaafmæli.

Ekki láta ykkur bregða ef 'post-nammidagsbömmer' birtist hér á síðunni á mánudaginn.

Góða helgi alle sammen.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með frænda :)
Hlakka ekkert smá til að hitta þig í brúðkaupinu...það bara styttist og styttist...

9:49 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hallo Hallo á ekkert að fara updata hérna ;)

kv,

Elsa

4:31 PM  

Post a Comment

<< Home