Website Counter
Hit Counters

Thursday, January 25, 2007

Eat shit and die you Tunisians

Úff púff segi ég bara....enn einn snilldar handboltaleikurinn að baki.
Djö.... eru "strákarnir okkar" góðir. Þeir tóku þessa Túnis-djöfla í kennslustund, enda var allur móðurinn farinn úr þeim undir lok leiksins og þeir skutu bara út í bláinn í einhverju pati.
Gott á þá... þeim hefndist aldeilis fyrir Tyrkja-Guddu í gær....muuuhahahahaa.

Með þessu áframhaldi getur þetta ekki endað nema á einn veg.... Íslendingar verða heimsmeistarar í handbolta.
Þá yrði nú kátt á hjalla hjá landanum.

Ég skil ekki þennan auðkennislykil sem maður á að nota í heimabankann sinn.
Ég er margbúin að lesa upplýsingarnar sem fylgdu, en er greinilega of treggáfuð því ég botna hvorki upp né niður.
Getur einhver vinsamlegast útskýrt þessa græju fyrir mér.... á smábarnamáli takk.

Er með harðsperður (er víst skrifað svona) frá annarri vídd í löppunum.
Ég er nú frekar sjóuð í harðsperðum, en aldrei lent í svona viðbjóði.
Ég á virkilega bágt með klósettferðir og að labba niður stiga.
Spurning um að halda sig bara á efri hæðinni með þvaglegg næstu dagana.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Jamms...bölvað vesen með þessa lykla!!!þú loggar þig sumsé inn í heimabankann eins og venjulega. Þá biður tölvan þig um auðkennisnúmerið. Þú ýtir á takkann á hliðinni á lyklinum, horfir á skjáinn og stimplar inn númerið sem þar kemur. Alltaf nýtt númer í hvert skipti þannig að það þýðir ekkert að leggja þetta á minnið. GOOD LUCK ;)

11:12 PM  
Blogger Naglinn said...

Díses... þvílíka vesenið. Þannig að maður þarf alltaf að hafa þetta drasl á sér ef ske kynni að manni hugnaðist að fara í heimabankann sinn. Hvað verður næst?? Staðsetningatæki skotið í alla landsmenn??
Mér finnst þetta óþarfa hræðsluáróður í landi sem telur aðeins örfáar hræður. Það er ekkert hægt að villa á sér heimildir... það þekkja allir alla!

9:57 AM  

Post a Comment

<< Home