Website Counter
Hit Counters

Friday, December 15, 2006

Fátækt á Íslandi

Undanfarna daga hef ég verið að fylgjast með umræðunni um fátækt á Íslandi og verð að segja að mér finnst það til háborinnar skammar að í velferðarsamfélaginu þurfi fólk að við að standa í röð í 3 tíma í snjókomu og skítakulda til að fá mjólkurpott frá Fjölskylduhjálp Íslands.
Og það er ekki eins og fólk geri þetta að gamni sínu, eða tími ekki að fara í Hagkaup. Fólk þarf að gjöra svo vel og kyngja stolti sínu og þiggja ölmusu frá góðgerðarsamtökum og vandalausum.

Það var kona í viðtali í Ísland í bítið s. l föstudag að segja frá baráttu sinni við fátæktarpúkann, og það var margt athygli vert sem kom fram þar.
Til dæmis nefndi hún lánagleði bankanna, og hversu auðvelt það er að lengja skuldahalann með yfirdráttum og lánum.
Hún sagði líka að það væri mjög erfitt fyrir fólk sem ekki er með stúdentspróf að fara í nám, því í háskólanám er krafist stúdentsprófs og verkmenntun er ekki lánshæf hjá LÍN.
Engir námsstyrkir eru í boði fyrir fólk á Íslandi, ólíkt því sem gerist á Norðurlöndunum sem er auðvitað til skammar.

Við Snorri ræddum það einmitt að hvorugt okkar hefði getað farið í nám erlendis ef við ættum ekki foreldrar okkar að, sem styrktu okkur um það sem upp á vantaði eftir að LÍN sendi skömmtunarseðilinn.

Í ljósi þessarar umræðu um fátækt á Íslandi, þá hvet ég alla sem vettlingi geta valdið að láta gott af sér leiða þessi jólin og styrkja þá sem ekki ná endum saman.

Það er til dæmis hægt að fara með gömlu sparifötin sem maður er hættur að nota í Sætún, en þar er Fjölskylduhjálp að dreifa því til fólks sem ekki hefur efni á nýju dressi.
Svo er hægt að kaupa eina aukagjöf handa barni og setja undir jólatréð í Smáralind eða Kringlunni, og tryggja þar með að jólin verði gleðileg fátæku barni.
Síðan eiga allir að styrkja fátæk börn úti í heimi allt árið um kring, eins og Unicef, Hjálparstofnun kirkjunnar, ABC o. fl.
Hver getur ekki séð á eftir 1000 kr á mánuði???
Bara sleppa einni bíóferð eða pizzu.

7 Comments:

Blogger thury said...

Ji ég fékk alveg tár í augun við lesturinn. Annars í svo rosalegum jóla/kærleiksfíling að það þarf lítið til þessa dagana.
Fór einmitt með jólaböggul á lókal-pöbbinn í gær en þar er verið að safna gjöfum fyrir þau börn sem þurfa að eyða jólunum á sjúkrahúsinu hér í bæ. Playmo, nokkuð viss um að það gleðji.
Fór líka með bunkann af litlum strákafötum í Hjálpræðisherinn.
Maður bara verður - ekki satt?

Jólaknús
Þurý

3:07 PM  
Blogger Naglinn said...

Jú það er alveg rétt, maður hreinlega verður að gefa af sér, það liggur stundum við að maður skammist sín fyrir hvað maður hefur það gott á meðan aðrir lepja dauðann úr skel. En hvað ég er ánægð með þig Þurý mín að láta gott af þér leiða. Þú ert ekkert smá öflug í góðverkunum.
Gleðileg jól til þín og fjölskyldunnar í Cambridge.
Hafið það gott! Knús frá Naglanum!

3:31 PM  
Anonymous Anonymous said...

já þetta er þvílík skömm að þessu að fólk hafi ekki í sig né á í einu ríkasta landi heims...það er nokkuð augljóst að það fá ekki allir að njóta góðs af velmeguninni. Ég var einmitt að taka skápinn í gegn um daginn og lét nokkur vel valin spariföt í poka og ætla með í Fjölskylduhjálp...þetta er einmitt kannski það sem helst gleymist að auðvita vilja allir punta sig upp yfir hátíðarnar, sem og aðrar hátíðir, en hafa ekki tök á því því það er jú ekki kannski helsta priority.

7:16 PM  
Blogger thury said...

Ég er nú alveg "saint-like" - fer á hverfispöbbinn og læt gott af mér leiða ;)

Gleðileg jól!

9:07 PM  
Blogger lou said...

sammála - lágmark að fólk gefi af sér. sorglega staðreyndin er sú að þeir sem hafa sem allra mest milli handanna virðist vera mest sama.. enda hentar þetta kerfi þeim, systemið hyllir þá ríku..

ég hef lagt af mörkum og er ekki hætt, stefni á pakka undir barnatréð næst..

9:27 PM  
Blogger Skottan said...

Þú færð Óskarinn fyrir þennan pistil.

10:53 PM  
Blogger Anna Brynja said...

Gleðileg jól sæta mín og gleðilegt ár.
Þetta er verðug umræða og þörf ekki spurning. Gott að vita að kærleikurinn er ennþá til staðar ...

Jólakveðja,
Anna Brynja

11:32 PM  

Post a Comment

<< Home