Website Counter
Hit Counters

Tuesday, April 11, 2006

Kaupæði

Á hverju vori hellist yfir mig verslunarmanía.

Í vetur hef ég hangið með nefið á búðargluggunum eins og litla stúlkan með eldspýturnar og ekki vogað mér inn ef ske kynni að ég myndi sjá eitthvað sem mig langaði í.

En þegar vortískan byrjar að prýða búðargluggana þá er eins og allar hömlur fjúki út í veður og vind og ég VERÐ bara að eignast nýjustu tískufötin fyrir sumarið.

Þrátt fyrir að eiga ekki bót fyrir auma rassinn á mér, þá er það sama að gerast þetta vorið.

Á sunnudaginn fórum við Karen í bæinn og ég kom heim 100 pundum fátækari en hlaðin pokum fullum af alls kyns óþarfa sem ég kæmist eflaust af án þess að eiga.

Nú á ég semsagt fullt af nýjum fötum, töskum og glingri en sultarólin verður í staðinn óþægilega þröng það sem eftir lifir mánaðar.

Veit einhver hvað maður fær mikið fyrir að selja nýrað í sér??

1 Comments:

Blogger Skottan said...

I get it, þú ert bara kona og verður að sætta þig við að það er enginn flóttaleið frá vortískunni;-)
Hvenær kemur þú til Íslands?

11:54 AM  

Post a Comment

<< Home