Website Counter
Hit Counters

Thursday, April 06, 2006

Ballerina

Ég sá mann í tátiljum í ræktinni í dag!!

Síðast þegar ég sá karlmann skarta slíkum fótabúnaði var fyrir tæpum 20 árum í leikfimistíma í Ísaksskóla.

Ég nánast skellti upp úr þegar ég tók eftir honum og er búin að vera í hláturskasti með sjálfri mér síðan við tilhugsunina um manninn tiplandi um salinn, klæddur eins og 12 ára ballerína til fótanna.

Ég verð samt að segja að ég óttaðist um litlu tásurnar á manninum innan um öll þungu lóðin sem hefðu getað kramið þær.

Hann ætti kannski frekar að kaupa sér kort í Jazzballet skóla Báru.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

ahahahhaa...VÁ hvað ég sé þetta fyrir mér :D En allavega...vildi bara kvitta fyrir mig enda kominn tími til þar sem mar kíkir alltaf reglulega á þig hérna.
Gangi þér allt í haginn í Guildford. Kv.Halla

12:09 PM  
Blogger Naglinn said...

Blessuð skvís,

Takk fyrir það!
Ég kíki einmitt alltaf reglulega á bloggið þitt líka.
Vona að þið skötuhjúin hafið átt góða daga í Barcelona. Mar var með græna slikju af öfund, hefði sko ekkert á móti að strolla niður Römbluna frekar en Guildford High Street.

1:11 PM  
Anonymous Anonymous said...

bwahahahha... ógeð fyndið :)

11:48 PM  

Post a Comment

<< Home