Website Counter
Hit Counters

Thursday, April 20, 2006

Bumbulius

Helvíti fór maður illa út úr þessari Íslandsdvöl.
Bumban á mér ber enn merki um sukk og svínarí og át og ólifnað helgarinnar.

Annars sit ég hér inni í kompunni minni og skrifa ritgerð eins og mökkur.
Er búin að gera áætlun sem felst í 1000 orðum á dag.
Alltaf gott að hafa plan...hvort það svo gangi eftir verður bara að koma í ljós.

Ég var illa montin í ræktinni í gær en það kom einn nýliði upp að mér og spurði af hverju ég lyfti svona þungum lóðum.
Hann sagðist skammast sín fyrir að lyfta minna en kona.

Já, Naglanum finnst ekki leiðinlegt að heyra svona komment!!!

Hrækt í lófa, sogið upp í nef og barið á bringu.

4 Comments:

Blogger Dagny Ben said...

Titill þessa bloggs gæti nú alveg valdið smá misskilningi þar sem velflestar verðandi mæður kalla sig ýmsum nöfnum með "bumbu-" forskeyti ;)

6:59 PM  
Anonymous Anonymous said...

Naglinn.. bomm??? Það var svo langt frá því sem mér datt í hug... en bumbulíus... ég kannast við þann fíling eftir páskana.. brúðkaupið. Maður verður að herða sig í ræktinni núna, bumban er allsráðandi á þessu heimili líka.
Góðar bumbu kveðjur frá landinu Ísa og gleðilegt sumar :)
Anna panna og eiginmaður

2:40 AM  
Blogger Skottan said...

Kvenleg þessi síðasta setning;-)

2:18 PM  
Blogger Naglinn said...

Já Naglinn er nú þekktur fyrir annað en kvenleika Skottan mín, hehemm.

Og ekki er ég bomm... bumban mín er afleiðing ofeldis en ekki frjóvgunar.
Ekki batnaði ástandið eftir þessa helgi heldur....hófsemi er ekki mín sterkasta hlið þegar kemur að nammidögum.

7:31 PM  

Post a Comment

<< Home