Með gleði i hjarta....
Naglinn er glaður í dag.
Ástæður gleðinnar eru eftirfarandi:
Það er föstudagur, sem er alltaf gaman þó að komandi helgi verði afar döpur félagslega séð.
Eitt stykki samantekt á literatúr (e. literature review) er að verða komin á koppinn.
Tvær flottar einkunnir fyrir ritgerð og fyrirlestur komu í hús í gær.
Bumbukvikindið er að hverfa, þó enn sé vænn skammtur af mör eftir. Það er meira hvað gjálífið er dýru verði keypt!
Góðir hlutir að gerast í ræktinni þessa vikuna, með aukningu í lóðaþyngdum fyrir nokkrar æfingar.
Það er komið vor og sólin skín. Það eitt og sér fær brúnina til að lyftast.
Að lokum óska ég lesendum góðrar helgar.
2 Comments:
bumbu ... ?
Þetta er nú orðið að einhverri rexíu ... gorgeous eins og þú ert! ;)
Nei nei nei...engin rexía hjá Naglanum.
Eins og ég sagði við móður mína, þegar hún sagði: " Þú ert örugglega með anorexíu" að sem betur fer erfði ég matarlystina frá honum föður mínum og mun því sem örugglega aldrei fá anó-ið.
LÍka að ef ég myndi ekki borða eins og skepna (6x á dag) þá myndi ég ekki vera að ná jafngóðum árangri í ræktinni.
Það var samt þessi gríðarlega matarlyst mín sem gerði það að verkum að bumban stækkaði (nammidagur dauðans), en hún er á hraðri niðurleið ;-)
Post a Comment
<< Home